Laugardaginn 10. október voru liðin 400 ár frá því Ari Magnússon sýslumaður kallaði saman lið í Ögri til aðfarar gegn Böskum sem höfðu komið sér fyrir í Æðey og á Sandeyri á Snæfjallaströnd. Vegna slæms veðurs hélt liðið ekki til Æðeyjar fyrr en þann 13. október. Það kvöld og aðfararnótt þess 14. október 1615 voru 18 Baskar vegnir í Æðey og á Sandeyri, og mun þetta að líkindum mannskæðasta
atlaga hérlendra yfirvalda gegn óvelkomnum útlendingum frá því að eiginlegt ríkisvald komst hér á á árunum 1262 til 1264. Er sagt að lík skipstjórans, Martins de Villafranca, sé dysjað í Ögurhólmum, en það mun hafa rekið þangað. Er þar síðan kölluð Bullufrankagjá.
Baskavinafélagið á Íslandi, Ögur ehf, Sýslumaðurinn á Vestfjörðum og Súðavíkurhreppur stóðu að gerð skiltis um Spánverjavígin sem var afhjúpað við athöfn í Ögri laugardaginn 10. október 2015. Skiltið byggir á efni sýningar Basakvinafélagsins um Spánverjavígin í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Vaxtarsamning Vestfjarða, Uppbyggingarsjóð Vestfjarða og fleiri. Aðalhöfundur texta er Sigrún Antonsdóttir. Guillermo Zubiaga gerði teikningar. Aðalsteinn Svanur Sigfússon gerði kort og Úlfur Kolka og Ólafur J. Engilbertsson sáu um hönnun.